Meistari Benedict bloggar

snilldzen

26.01.2007 23:14:13 / benedict

bloggzen

Nýtt bloggzen; thorvaldzen..................

Ætla að testa þetta smá

YOU ARE NOT HERE

alltaf langað að prufa.......


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 19:34:45 / benedict

Rautt spjald og listagyðja

Rautt spjald á dómara leiksins í gær :( rosalega var sárt að horfa á þetta 8| pff..... breytir engu, við tökum bara næsta leik! Ísland -Slóvenía.......

Listagyðjan mín dásamlega er í heimsókn hjá mér núna. Gistir meira að segja. Ég mála, teikna, skrifa og bý til tónlist. Hún hefur þessi áhrif á mig, þessi elska.

Vinnuhelgi framundan, afskaplega hressandi það. Húsdýragarður, bíó og margt margt fleira.

En þið hin, sem vinnið ekki um helgar eða eruð í fríi..... eigið góða helgi! þið sem eruð að vinna...... stay strong ;) hehehehe


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 13:28:31 / benedict

HELGARFRÍ!!!

Jebbz...... þá er komið helgarfrí enn á ný...... maður fær nú aldrei nóg af þeim þegar maður er í vaktavinnu.... Það er alveg geggjað veður úti núna.... Ef ég væri skíðamaður væri ég sennilega farinn upp í fjöll...... En þar sem ég er það ekki, vil ég skora á ykkur skíðamenn og konur að drífa ykkur á plankana.....

Ég byrjaði daginn skemmtilega vaknaði um 7 leytið, fékk mér kaffibolla og fór í sturtu...... hélt svo niður á svæðisskrifstofu í verkáætlunarskil og kynningu, sem gekk bara mjög vel :D

Svo smellti ég mér í Smáralind, í Söstrene Gröne, og náði mér í þennan líka svakalega striga...... 100 cm x 120 cm........ þannig að helgin fer sennilega mikið í það að klessa einhverri drullu á flötinn...... Einhver sem vill kaupa ómálað málverk á 20 millur? bara hafa samband ;)

Svo hefur verið aukin pressa á nýja strípu á masterbenedict.com...... og eins og sannur listamaður sem málar eftir númerum mun ég líklega láta undan :P

Já, eitt góðverk...... ég keypti einhverja nælu af konu í Smáralind..... Þetta var til styrktar Kaffistofu Samhjálp........ jebb jebb jebb........ afar hressandi

anywayz....... góða helgi


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 17:36:05 / benedict

Góður dagur....

Kappinn knái

Jíhaa...... það er búið að vera ferlega mikið að gera hjá mér í dag... vaknaði klukkan átta og hvað svo? Jú ég slappaði símann og steinsofnaði aftur.... Þá dreymdi mig einhvern furðulegasta draum sem mig hefur dreymt.

 

 

Ég var að fara í bíó í Smáralind ásamt mági mínum og systur. Við ætluðum einnig að hitta járnmanninn fótbrotna, Arnold Schwarzenegger.... ?!?   nema hvað, sem við keyrum í leit að stæði, sé ég að kappinn (Arnold) er í bíl fyrir aftan okkur, ég öskra til að láta vita og Gummi (mágur minn) neglir niður og Schwarzenegger keyrir á okkur...... og keyrir svo beinustu leið í burt..... við leggjum og nálgumst kauða.... Þá sparkar hann árituðum fótbolta til okkar.......

og ég segi við hann: “Við höfum ekkert við þennan bolta að gera, þeir eru ókeypis í Hagkaup!”..... Svo förum við að ræða saman og hann gefur okkur eiginhandaáritanir...... mömmu (sem var allt í einu komin þarna) gaf hann tvö stykki og mér eina og ég bað um eina fyrir pabba......

Svo er sem ég sé að hann er að skrifa eitthvað á blað...... og ég spyr: “Hvað ertu að gera?”....... hann segir: “Þetta er talnaspeki” ....... og svo sé ég nafnið hans pabba og töluna 2...... ????

 

 



Furðulegt, skemmtilegt og fyndið. Allt í sömu andrá....... Ég gogglaði töluna 2 og fékk að hún merkti balance .... ying/yang ....... og eitthvað fleira....... hmmmm.... merkilegt!

 

 



Svo þegar ég vaknaði fór ég í Smáralind og keypti afmælisgjöf fyrir múttu..... Senseo kaffivél!...... sem hún var ekkert smá ánægð með.... Restin af deginum fór svo í snúninga fyrir Fjölskylduhátíð Hnotubergs sem verður á sunnudaginn.

 

 



Að lokum tek ég mér orð stórvinar míns, Atvinnumannsins þegar hann var búinn að eyða hálfri mínútu í að gefa hænsnum fóður:

 

 



Jæja, þá er þetta búið............ þetta var ekki erfitt...............en lýjandi :D  


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 23:44:46 / benedict

ahhh......

Þá er vinnuvikan að lokum komin.....frí á morgun og svo vinnuhelgi....... hef verið á kvöldvöktum alla þessa viku, sem er rosalega fínt en tekur svolítið á :)

Helgin á eftir að verða hina bezta skemmtun, Fjölskylduhátíð Hnotubergs er á sunnudaginn :D og þar á nú eftir að verða glaumur og gleði. Mikil skemmtun.

Ég hef voðalega lítið annað að segja hérna núna. Fann mig bara knúinn til að smella inn svosem einni færslu til að breyta til.....

Jæja, hef styttra í næstu færslu..... :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 14:21:13 / benedict

Gleðilegt ár

Kæru vinir,
Afskaplega hefur þetta verið stórt og mikið ár í mínu lífi. Á þessum tímamótum er alltaf gott að staldra aðeins við, og líta yfir árið.

byrjaði að blogga,

hætti að spila CS

Skrifaði BA-ritgerð,

útskrifaðist sem þroskaþjálfi,
mótmælti sem þroskaþjálfi,

keypt mér íbúð og get hana (að hluta) upp,
fór í mínu fyrstu útskriftarferð, og það til Búlgaríu!
byrjaði í nýju starfi sem yfirþroskaþjálfi,
Flutti tvisvar,
kynnti mér búddisma (smá, en ætla að bæta úr því),
varð 27 ára,

keypti mér lén,

byrjaði að teikna comics,
keypti mér nýjan bíl....

... og örugglega margt, margt fleira.

Þetta hefur verið prýðilegt ár hjá mér. Með hæðum og dölum eins og eðlilegt er. Nú er bara að takast á við nýtt ár af sama krafti og einkenndi árið 2006. Svo að lokum segi ég bara:

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla

... eina leiðin








» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 18:31:39 / benedict

Gleðileg jól

Gleðileg jól

eina leiðin...


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 19:44:00 / benedict

Níðstöng!

Hahahaha..... það var einhver gaur sem setti upp níðstöng til höfuðs einhverjum sveitungi sínum sem keyrði á hundinn hans....... þetta finnst mér svo ofur kúl!

Pælið í öllum níðstöngunum sem myndu vera hérna á höfuðborgarsvæðinu ef þetta væri hefð....... HAHAHAHA.........bráðskemmtilegt!

kíkjið á fréttina


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 17:09:51 / benedict

Hvað er að gerast?

omg...... hvað er að gerast? Veðrið er búið að vera svo bandvitlaust undanfarið. Maður fer að hugsa hvort eitthvað sé að gerast :| Skýstrókur í lúndúnum, veðrið eins og það hefur verið hérna.... var á næturvakt í nótt.... og ég heyrði tvisvar sinnum þessar þvílíku drunur, veit ekkert hvað það var..... gæti hafa verið vindkviða, en hljómaði alls ekki eins og nein vindhviða sem ég hef heyrt í 8| spennandi spennandi....

En annað í fréttum. Ég er kominn í frí til 27. desember :D ekkert smá glaður með það :D sérstaklega þegar svona frí fylgir 68 tíma vinnutörn ;)

Ég ætlaði að fara á stúfana í dag....... var bara alls ekki að nenna því..... veðrið átti sinn þátt í því...... svo ég kíkkaði bara í heimsókn til settsins og systu :D svo bara good old home :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 23:44:02 / benedict

Vá, takk takk :D

Jáhá :lol: alveg hreint ótrúlega skemmtilegur dagur að baki :D

Hann byrjaði á því að ég svaf út..... smellti mér svo með gamla í heimsókn til ömmu og við gerðum tilraun til að laga þvottavélina hennar (sem mig btw að sé ekkert biluð :P ) anyways....... svo var haldið upp í Ingvar Helgason, þar sem ég smellti mér á eitt stykki bíl :D ahhhh...... það er svo gott að vera kominn á sinn eigin bíl...... tja eða minn og lýsingar ;) fékk þar í kaupbæti forláta gjafakort í Smáralind. Upp á 75.000 krónur :D verður gaman að eyða því..... hmmmm :D

Svo kíkti ég í Krókamýrina þar sem ég og gamli smelltum parketi á gólfið (gamli ofvirkur :P)..... þar fékk ég óvætan glaðning, gamla gaf mér potta og pönnur, rúmteppi og ljósaskreytingu :D jiiiibbý

Svo fór ég heim eftir herlegheitin og lagði mig í tvo tíma, vaknaði og er nú kominn í vinnuna á næturvakt.....  :D.... úff púff.......

æðislegt, dásamlegt, frábært!

Svo eru bara jólin á næsta leyti...... ég er búinn að setja upp jólalandið. Ekkert meir og veit ekki hvort ég setji upp meira, nema kannski ljósaskreytinguna ? jú ég geri það nú :D

anyways........ takk fyrir dásamlegan dag :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 23:02:52 / benedict

frídagur

ahhhh...... átti frídag í dag..... rosalega var það nú gott :lol: svaf út, teiknaði og borðaði svo með systu..... wonderful ;)

ég er búinn að henda inn nokkrum strípum á www.masterbenedict.com endilega kíkjið á það 8)

annars er bara allt gott að frétta, lífið gengur sinn vanagang ;) almennur hressleiki bara...... bahhh.... nenni ekki að skrifa meira :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 16:30:58 / benedict

föstudagur til furðu

ahhhhh..... helgarfrí :D ekki svo að skilja að þessi vika hafi verið leiðinleg, þvert á móti var hún mjög skemmtileg og stútfull af innhaldríkum samtölum :) en það er afskaplega gott að fá helgarfrí ;)

Þessi dagur er eiginlega búin að vera svo slæmur að ég get ekki annað en hlgið mig máttlausan yfir því. Hann byrjaði á því að ég vaknaði við að síminn minn hringir, "Hnotuberg" stóð á skjánum. Ég hugsaði með mér: "hvað er verið að hringja í mig núna?", þar næst er mér litið á klukkuna á símanum. 8:30 ! obbobbobb.....búinn að sofa svona líka yfir mig...pffff..... jæja ég smelli mér í fötin og dríf mig af stað uppeftir. Jæja, dagurinn byrjaður. Hefðbundinn föstudagsmorgun hjá mér, er að fara gera upp tómstundarsjóð vikunnar. En nei, engir lyklar í vasanum mínum. svo ég get ekki opnað tómstundasjóðinn 8| .... Hvar eru þeir. Heima hjá mér, í læstri íbúðinni..... arg!

Uppúr hádeginu fæ ég að skjótast á fasteignasöluna þar sem lyklar af húsi foreldra minna er. Ætla að taka bensín því bíllinn var farinn að ganga á bensíngufunni. Stoppa á atlandsolíu..... ætla að teygja mig í veskið í vasann..... og hvar haldið þið að veskið mitt hafi verið? jú mikið rétt! í læstri íbúðinni...... lítið annað hægt en að drífa sig að sækja lyklana upp á fasteignasölu, fara og sækja lyklana mína í Krókamýrinni.

En þetta hafist allt!! Dásamlegt ævintýr!

Á morgun er ég svo að fara að gera teiknimynd ásamt félögum mínum. Sem verður bara gaman.... læt hana inn þegar hún er reddí :D

en jæja góða helgi!


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 23:41:04 / benedict

fín helgi að baki

mjög skemmtileg helgi er að baki. Það er einnig jákvætt að næsta helgi er fríhelgi :D Ég var soldið hyper í vinnunni í dag.... byrjaði á því þegar ég mætti að baka croissant, sem reyndar tók einhverja 4 tíma. Var ekkert að flýta mér. Nú svo í kvöldmatnum eldaði ég súpu, grænmetissúpu. Þetta tókst vel að mínu mati. Allavega gengu allir saddir og sælir frá borði :lol:

Morgunvakt í fyrramálið og þarf ég líklega að vakna klukkan 5 og leggja af stað klukkan 6 til að mæta á réttum tíma :| en svona er nú Ísland ;)

Jæja jæja....... farinn að sofa :D góða nótt


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 21:08:24 / benedict

hvað er að gerast? hvað er að gerast?

já, kæru vinir. Kraftaverk! tvö blogg í dag hjá mér. Ég einfaldlega varð bara að deila hérna með ukkur myndbandi sem er virkilega inspiring(andargift? er það ekki skrifað svona:S) allavega tjékk it!

FAÐMLAGS HERFERÐIN

hvernig væri að taka sig til og gera þetta á góðviðrisdegi á Austurvelli næsta sumar???

ég er til? hver er með?


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 17:57:54 / benedict

Helgi mætt á nýjan leik

Já, nú er komið að helgi enn og aftur. Reyndar eru þessar helgar ekki eins spennandi og hinar, þ.e.a.s. vinnuhelgi. en þetta verður bara fínt. Já, er það ekki bara fínt! :lol:

það er lítið/ekkert að frétta af yfirráðasvæði mínu á netinu www.masterbenedict.com vegna þess að ég hef ekki haft tíma í vinna í síðunni, en hún kemur ;)

Ég fór á búddistafund í gær sem var alveg frábært, ætla að kanna þetta nánar :D

en þar til næst....... góða helgi :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5